Jæja þá er víst komið að hinu mánaðarlega bloggi mínu
Torrent.is dáið, harmleikur sem erfitt verður að komast yfir. Þarna gat ég sótt mér nýjustu Greys og Despo, hvernig á ég núna að vita hvað verður um barnið hennar Danielle og samband Izzy og George? Mér líður bara eins og þegar ég missti stöð 2 og vissi að vinskapurinn við nágrannana mína var búinn og kunningjaskapur framundan. Já ég er heppinn ef ég get kallað þá kunningjana mína - hitti þá varla einu sinni í mánuði og veit þá ekkert hvað er að gerast hjá þeim...
...merkilegt samt hvað mér finnst alltaf þættir lélegir ef ég horfi ekki á þá í nokkurn tíma og sé þá síðan aftur...ok ekki allir þættir bara sápur. Ég man þegar ég var í skólasundi og það hitti akkúrat þannig á að nágrannar voru búnir þegar ég kom heim og sorpið glæstar eina sem eftir var, ég verandi sá sjónvarpssjúklingur sem ég var/er, varð náttla að fá minn sápuskammt og lagðist því með ridge og thorne. Þetta stutta sundnámskeiðstímabil varð upphafið að áralöngu sambandi við Ridge og frúr. En að lokum sneri ég mér að raunveruleikanum og ef ég rekst á Ridge núna þá hlæ ég, ég hlæ af því ég nennti að eyða tíma með honum. Ætli ég hlæi að Greys og Despo í framtíðinni?
Ég verð nú samt að segja að sjónvarpsfíkn mín hefur minnkað með tilkomu dánlóda, eða hefur hún kannski bara breyst? Áður fyrr átti ég mér mína þætti á vikukvöldum og man ég að fimmtudagskvöldin voru best, þá var malcolm in the middle, ástralskur þáttur sem ég man ekki hvað heitir, sex and the city og fleira góðgæti. En núna á ég svo mikið inná tölvunni minni að ég þarf ekki að bíða fram á fimmtudagskvöld til að fá skammtinn minn, ég get sest þegar ég vil niður í sófa og sprautað mig fulla af snillingunum í arrested development eða sniffað smá friends, æi þetta var nú frekar ósmekklegt - ég myndi laga þetta ef að bksp takkinn minn væri ekki bilaður.
En já snúum okkur aftur að upphafspælingunni, mun núna sjónvarpsfíkn mín falla í sama farið þar sem torrent.is er dáið, hvað gera fíklar sem missa stöffið sitt? - ætli SÁÁ bjóði uppá sjónvarps-meðferð? Ætli þeir séu með sjónvarp?
Ef þið eruð að velta fyrir ykkur hvort þið séuð sjónvarpssjúklingar þá hef ég eitt gott viðmið, ef þið horfið á sjónvarp til að horfa á sjónvarp en ekki til að horfa á áhugaverða þætti þá eruði hugsanlegir fíklar. Ég áttaði mig á þessu viðmiði þegar við fjölskyldan vorum á leið út á land og stoppuðum í Hyrnunni að fá okkur að borða. Það var kveikt á sjónvarpinu og e-r unglingaþáttur í gangi þar sem klukkan var um 18. Ég var ekki unglingur á þessum tíma heldur barn, en þar sem bróðir minn vissi um fíkn mína þá spurði hann mig hvaða þáttur þetta væri, þar sem ég þekkti allt ruslið í sjónvarpinu. Þrátt fyrir að hafa engan áhuga á þættinum gat ég þulið upp fyrir honum allan söguþráðinn og helsta plottið - já gleymdi ég að segja að ég var líka sjónvarpsvísa-sjúklingur?
Hey verð að fara, dánlódaið var að klárast á torrentspy.com
-Já ég er ekki svo naive að halda að torrent.is sé eini dílerinn í heiminum